Ásamt tæplega 40 listamönnum frá 15 evrópskum smáríkjum og svæðum lýsir Listasafn Íslands ánægju sinni með opnun HUGLÆGRA LANDAKORTA / MANNSHVÖRF, sem framlagi sínu til Listahátíðar í Reykjavík, 2013. Sýningin dregur upp mynd af hinni miklu fjölbreytni, sem finna má í nálgun listamanna frá smáríkjum Evrópu, þjóðum með innan við milljón íbúa, óháð landfræðilegri legu og stærð landa þeirra. Með blað- og bóklist að vopni takast þessir listamenn á við langa hefð einstæðrar útgáfustarfsemi, sem miðlun skapandi samskipta.
Smáþjóðir Evrópu eru annað hvort umluktar öðrum löndum eða staðsettar í miðju hafi. Dreifing þeirra um álfuna gerir þær að útvörðum evrópskrar menningar í sinni margbreytilegustu mynd. Þær teygja sig frá syðsta hluta Miðjarðarhafsins til nyrstu djúpa Atlantsála og mynda öxul, sem nær frá vestasta odda álfunnar til austustu eyjar hennar.
LAUGARDAGSLEIÐSÖGN KL. 11, ALESSANDRO CASTIGLIONI UM SÝNINGUNA HUGLÆG LANDAKORT - MANNSHVÖRF
OPIN VINNUSTOFA Á SUNNUDAG MILLI KL. 10.30 - 13.30. Sunnudaginn 19. maí kl. 10.30 - 13.30 verður OPIN VINNUSTOFA í sal 1 þar sem verða fluttir fyrirlestrar og kynningar á næstu verkefnum samtakanna. Umræður og fyrirlestrar verða fluttir á ensku. Dagskrá/Program The Little Constellation research Project, Introduction and presentation by Rita Camarezza og Pier Paolo Coro, artists, San Marino. Of other Places - Little Constellation , Gibraltar 2014-2015, workshop by Alessandro Castiglioni, Little Constalation curator, Nina Danino, artist and filmmaker, Senior Lecturer in Fine Art Goldsmiths University of London Svetlana Racanovicié, Indipendent curator Montenegro. Parallel Borders Lecture by Mark Mangion, artist and curator, Malta Contemporary Art Aspects of the hidden in Maltese Culture and language Georgina Portelli, Psycholinguistic researcher, Malta Gibraltar Interior/Exterior a search for identtity Gino Sanguinetti, artist, Association of Fine Arts, Gibraltar /ti'tano/Little Constellation 2013 Alessandro Castiglioni, in occasion of Errors Allowed - Mediterranea16, Young Artists Biennial, Ancona, Italy, 6 June- 6 July, 2013 Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
|