Listaklúbburinn Selma

Listaklúbburinn dregur nafn sitt af Selmu Jónsdóttur listfræðingi (1917-87) sem var safnstjóri Listasafns Íslands 1950-87 og öflugur frumkvöðull í kynningu á myndlist hérlendis.
Listaklúbburinn er fyrir fólk sem vill kynna sér myndlist og fylgjast vel með þeim sýningum sem eru í safninu.

Listaklúbbur SELMA er klúbbur áhugafólks um myndlist. Félagsaðild veitir aðgang að sérsniðinni leiðsögn og fyrirlestrum í safninu, ásamt skipulögðum ferðalögum í tengslum við listviðburði í öðrum söfnum. Félagar fá afslátt í Safnbúð og jafnframt 25% afslátt af sýningarskrá viðkomandi sýningar. Sækja má um aðild að klúbbnum á vefsíðu safnsins, www.listasafn.is, eða með tölvupósti á selma@listasafn.is.

Fríðindi með árskorti fyrir einstaklinga og heimili:
Árskort gildir í 12 mánuði frá útgáfudegi.
  • Boð á opnanir með léttum veitingum og sérleiðsögn.
  • Afsláttur í safnbúð.
  • Upplýsingar í prentmáli og tölvupósti.
  • Kostur á að fara í sérstakar hópferðir með leiðsögn sérfræðinga á listasöfn erlendis.
  • Gjöf frá Listasafninu við inngöngu í klúbbinn.
Upplýsingar um verð fyrir einstaklinga og heimili
Árskort: Verð kr.
Einstaklingur 3.500
Par 5.000
Eldri borgari (yfir 67 ára), öryrki, námsmaður *2.500
Par, eldri borgarar, öryrkjar, námsmenn *3.500
Fjölskylda (par og ungmenni 13-18 ára) **6.000

* Námsmenn sýni skólaskírteini við kaup á árskorti.
**Ókeypis er í safnið fyrir börn 12 ára og yngri.









Safnbygging: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík Skrifstofur: Laufásvegi 12 • Sími 515 9600 • list@listasafn.is