... að allir séu óhultir - sýningaropnun 17.06.24

11.6.2024

Listasafn Íslands í samstarfi við umboðsmann barna býður uppá myndlistarnámskeiðið í Safnahúsinu undir handleiðslu myndlistarfólksins Margrétar H. Blöndal og Kolbeins Huga. Börnum frá Grindavík á aldrinum 10-12 ára var sérstaklega boðin þátttaka á námskeiðinu.

Þann 17. Júní kl. 15 verður opnuð sýningin … að allir séu óhultir en þar sýna börnin afrakstur sinn af myndlistarnámskeiði þar sem unnið var út frá reynslu barna frá Grindavík sem þurftu að flýja heimili sín 10. nóvember s.l. Á sýningunni verða einnig sýndur hluti gagna frá þingi sem umboðsmaður barna hélt með börnum frá Grindavík í byrjun mars. Við opnun sýningarinnar verður stjórnvöldum afhent skýrsla með niðurstöðum fundarins í mars og verður forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson við opnunina.

Við sama tækifæri verður opnuð í Safnahúsinu sýningin Daufur skuggi – Fánar í íslenskri myndlist en þar verður sjónum beint að fjölbreyttum verkum úr safneign Listasafns Íslands þar sem fánar eru útgangspunkturinn. Fánar eru tákn sjálfstæðis og þjóðernisvitundar. Við flöggum þeim jafnt við alvöruþrungin og gleðirík tilefni sem kalla á þjóðarstolt og ættjarðarást. Á seinni tímum hafa listamenn nýtt sér fánann á tilraunakenndan eða ögrandi hátt til að setja spurningarmerki við hugmyndir um þjóðernisvitund.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17