Leitað er eftir áhugasömum rekstraraðilum til að taka að sér rekstur kaffihúss í safninu á Fríkirkjuvegi 7. Kaffihús í söfnum eru í dag sívaxandi þjónustuþáttur við safngesti og reynslan hefur sýnt að mikill meirihluti safngesta kannar það sem er á boðstólum á kaffihúsinu á ferð sinni um safnið. Gert er ráð fyrir að rekstraraðili eigi í skapandi samtali við stjórnendur safnsins með það sameiginlega markmið að gestir safnsins séu ánægðir með veitta þjónustu.
Hafir þú áhuga á að sækjast eftir rekstri kaffihússins okkar, vinsamlegast hafðu samband við Önnu Maríu Urbancic, anna@listasafn.is til að fá afhentar upplýsingar um þau matsgögn sem þarf að útfylla og skila.