Útileiðsögn um slóðir listamanna í nágrenni Listasafns Íslands. Gönguferðinni lýkur í Safni Ásgríms Jónssonar þar sem boðið verður upp á kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi
Gæðastundir í Listasafni Íslands.Dagskráin er ætluð eldri borgurum og er samsett af sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi Listasafns Íslands.Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi og meðlæti á gæðastundum í Listasafni Íslands. Bakkelsið er í boði Brauðs og Co sem styrkir verkefnið.Hámarksfjöldi gesta á hverjum viðburði er 25 manns.Hægt er að skrá sig á staka viðburði með því að senda póst á netfangið mennt@listasafn.is eða í síma 515 9600.Aðgangseyrir á safnið gildir.Frítt fyrir meðlimi Selmuklúbbsins.Nánari upplýsingar um viðburðina má finna á heimasíðu Listasafns Íslands, www.listasafn.isTengiliður dagskrár: Guðrún J. Halldórsdóttir gudrun@listasafn.is