Hrekkjavaka í Listasafni íslands

28.10.2024

Komdu ef þú þorir!


Hrekkjavaka í Ásgrímssafni og Hrekkjavökubíó í Listasafni Íslands á Fríkirkjuvegi.

Hin árlega hrekkjavaka í húsi Ásgríms Jónssonar á Bergstaðastræti 74 verður á sínum stað, enda er það orðinn þekktur viðkomustaður furðuvera á hrekkjavöku.

Við hvetjum öll sem þora, að heimsækja gamla heimili listamannsins á þessum tíma árs... Húsið lifnar við og margt leynist í myrkrinu.

Facebook viðburður

Listasafn Íslands X Bíó Paradís

Hrekkjavökubíó fyrir börn í Listasafni Íslands!

Verið hjartanlega velkomin í Listasafn Íslands á hryllilega skemmtilegt bíókvöld á verkstæðinu á Fríkirkjuvegi – við bjóðum uppá alvöru bíópopp og hrekkjavökustemningu!

Í samstarfi við Bíó Paradís, sýnum við bíómyndina Nellý Rapp Skrímslaspæjari (2020) – sannkallaða ævintýramynd þar sem draugar, vampírur og varúlfar leika lausum hala! Myndin er talsett á íslensku og er merkt ekki við hæfi barna yngri en ára.

Nánar um myndina hér

Við ýtum á play kl. 19:30 svo það er um að gera að mæta ögn fyrr til að koma sér vel fyrir og ná sér í popp. Fyrir þá sem eldri eru er upplagt að skoða 140 ára afmælissýningu Listasafns Íslands Innsýn, útsýn – Listasafn Íslands í 140 ár, sem fyllir alla sali safnsins.

Fyrir þá sem vilja gera vel við sig verður Kaffihúsið Kaktus Espressobar með sérstakt Hrekkjavökutilboð á súpu og vínglasi fyrir þá fullorðnu og tilboð á heitu súkkulaði og vöfflum fyrir börnin.

Ókeypis aðgangur fyrir alla sem mæta mæta í búning og öll börn 18 ára og yngri! Hlökkum til að sjá ykkur!

Facebook viðburður

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17