Leiðsögn í Safnahúsinu við Hverfisgötu, sunnudaginn 20. janúar kl. 14.
Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands veitir leiðsögn um sýninguna Sjónarhorn - ferðalag um íslenskan myndheim í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Um 130 verk á sýningunni eru í eigu Listasafns Íslands og sjónum er sérstaklega beint að þeim í leiðsögninni.
Sýningin Sjónarhorn er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Íslands, Landsbókasafns-Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Verið öll velkomin. Ókeypis aðgangur er að leiðsögninni.
NÚ GETURÐU HEIMSÓTT FJÓRA STAÐI!
Frá og með 1. janúar 2019 tekur gildi breyttur aðgangseyrir. Innifalið í aðgangseyri er nú heimsókn á fjóra staði, við bætist Safnahúsið við Hverfisgötu.
Auk safnanna þriggja sem mynda Listasafn Íslands; Aðalsafnhúsið við Fríkirkjuveg, Safn Ásgríms Jónssonar Bergstaðastræti og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga, gildir aðgöngumiðinn nú einnig í Safnahúsið við Hverfisgötu þar sem er sýningin Sjónarhorn, ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú.
Sýningin Sjónarhorn er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og Þjóðskjalasafns Íslands. Fjöldi lykilverka úr safneign Listasafns Íslands eru á sýningunni en í sjö álmum Safnahússins eru jafn mörg sjónarhorn sem tengja saman ólík listaverk og áhugaverða muni, þvert á efni og tímabil.
Aðgangur að Safnahúsinu er samvinna Listasafns Íslands við Þjóðminjasafnið, sem sér um rekstur hússins og sýningarinnar.Sjá opnunartíma og verð.