SUNNUDAGSLEIÐSÖGN Í SAFNI ÁSGRÍMS JÓNSSONAR: UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI
9.6.2016
Sunnudaginn 12. júní kl. 14.00 verður leiðsögn um sýninguna Undir berum himni - Með suðurströndinni í fylgd Eyrúnar Óskarsdóttur, listfræðings.
Á sýningunni er að finna mörg öndvegisverka listamannsins frá ferðalögum hans austur í Skaftafellssýslur. Verkin á sýningunni eru frá árunum 1909 - 1928, bæði olíu og vatslitamyndir. Eyrún mun rekja feril listamannsins og fjalla sérstaklega um vatnslitamálverkin með hliðsjón af blæbrigðum birtunnar í verkunum.