Fimmtudagurinn langi
fim
30. jan
19:00—21:30
Myndin Nothing Special (Martin Zarka, 2019) er sýnd á Verkstæðinu
Hversu vel kanntu á myndavélina þína?
Tilsögn um ljósmyndum – tækni og listræn nálgun
19:00
Bíó á Verkstæðinu
Sýnd verður heimildarmyndin Nothing Special (Martin Zarka, 2019) um danska ljósmyndarann Joakim Eskildsen. Lengd myndar 38 mín.
Joakim er vel þekktur fyrir ljósmyndaesseyjur sínar um samfélög á jaðrinum, þar á meðal um Rómafólk og Bandaríkjamenn sem lifa við fátækt. Joakim er einn fimm ljósmyndara sem tekur þátt í sýningunni Nánd hversdagsins, sem stendur nú yfir í Listasafni Íslands.
---
20:00 – 21:30
Hversu vel kanntu á myndavélina þína?
Tilsögn um ljósmyndum – tækni og listræn nálgun
Ljósmyndarinn Páll Stefánsson tekur á móti gestum Listasafns Íslands á Fimmtudaginn langa þann 30. janúar frá kl. 20 og veitir þeim tilsögn í ljósmyndun.
Gestir eru hvattir til þess að mæta með sínar eigin myndavélar. Hér gefst kjörið tækifæri til að viðra spurningar, vangaveltur og hugmyndir að listrænum verkefnum. Umhverfi og sýningar safnsins veita innblástur að tækifærum til ljósmyndunar.
Viðburðurinn hentar bæði lengra komnum sem og byrjendum.
Verið hjartanlega velkomin!
---
Aðgangseyrir á safnið gildir en ATH. að á löngum fimmtudögum býðst gestum að kaupa árskort í safnhús Listasafns Íslands á almennu miðaverði.
Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg er opið til kl. 22 á Fimmtudaginn langa.