Krakkaklúbburinn Krummi

lau

31. ágúst

14:0016:00

Safnahúsið
Krummi

Krakkaklúbburinn í Safnahúsinu við Hverfisgötu

Eins manns rusl er annars manns gull
Við endurnýtum alls konar efnivið og búum til skúlptúr. Hugsum um náttúruna og skoðum verk í Safnahúsinu sem tengjast efninu.  

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.

Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17