Leiðsögn sýningarstjóra á ensku

sun

17. nóv

14:0015:00

Listasafnið

Leiðsögn sýningarstjóra á ensku
Pari Stave sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna Innsýn, útsýn – Listasafn Íslands í 140 ár

Í tilefni af 140 ára afmæli Listasafns Íslands er efnt til sýningar á völdum listaverkum úr safneigninni eftir um 100 listamenn frá mismunandi tímabilum listasögunnar. Sýningin er haldin í öllum fjórum sölum safnbyggingarinnar við Fríkirkjuveg og skiptist í fjögur meginþemu: form, manneskjan, samfélag og landslag. Sýningin endurspeglar ekki aðeins það hlutverk Listasafns Íslands að byggja upp safnkost sem endurspeglar strauma og stefnur í listum hverju sinni, heldur einnig mikilvægi safnsins sem varðveislustaðar og lifandi vettvangs skoðanaskipta.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17