Margpóla
sun
14. apríl
14:00—15:00
Leiðsögn listamanns
Á sýningunni Margpóla beinir listamaðurinn Anna Rún Tryggvadóttir sjónum sínum að segulsviði jarðarinnar. Hið ósýnilega segulsvið er forsenda alls lífs á jörðinni því það verndar andrúmsloftið fyrir eitruðum geislum sólarinnar. Sjá má í berglögum að segulpólarnir, norður og suður, hafa frá upphafi jarðarinnar verið á reiki og höfuðáttirnar norður, suður, austur og vestur sem við notumst við í dag eru því einungis tímabundið ástand. Skynjun mannfólksins á þessum óútskýrða hverfulleika verður Önnu Rún að yrkisefni í þessari heildstæðu innsetningu tvívíðra og skúlptúrískra verka.
Aðgangseyrir á safnið gildir.