Gæðastundir

mið

12. feb

14:0016:00

Gæðastundir
Listasafnið

Nánd hversdagsins
12. febrúar kl. 14   
Leiðsögn sérfræðings um sýninguna Nánd hversdagsins sem samanstendur af rúmlega 60 ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orra Jónsson og Sally Mann. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands. Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst.

Gæðastundir eru viðburðir sem ætlaðir eru eldri borgurum. Viðburðirnir eru samsettir úr sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi.

Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi og meðlæti á gæðastundum í Listasafni Íslands. Kaktus Espressobar á Fríkirkjuvegi styrkir verkefnið með bakkelsi.

Aðgangseyrir á safnið gildir.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17