Safnanótt 2025

fös

7. feb

17:0023:00

Listasafnið
Safnahúsið

Á Safnanótt eru safnhús Listasafns Íslands opin til kl. 23:00 og ókeypis aðgangur frá 17:00 - 23:00.

Gestum Safnanætur býðst að kaupa árskort á söfnin okkar á almennu miðaverði, 2.200 kr.

Dagskrá í Listasafni Íslands

KL. 17:00
LEIÐSÖGN UM NÁND HVERSDAGSINS
Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari leiðir gesti Safnanætur um sýninguna Nánd hversdagsins. Sýningin samanstendur af rúmlega 60 ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orra Jónsson og Sally Mann.

Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst. Sýningin hverfist um þá hugmynd að ákveðin augnablik sé aðeins unnt að fanga með því að ljósmyndarinn byggi upp nánd, eftirtekt og íhygli gagnvart viðfangsefnum sínum yfir langan tíma.


KL: 18:00
HVAÐ GERIST ÞEGAR MÁLVERK VEÐUR TIL? OG HVAÐA MÁLI SKIPTIR ÞAÐ?
Myndlistarmaðurinn Birgir Snæbjörn Birgisson mun skoða með gestum nokkur vel valin málverk á sýningunni, Innsýn, útsýn. Fjallað verður um hvað gerist þegar málverk verður til og hvaða máli það skiptir. Vitnað verður í nýútkomna bók rithöfundarins og gagnrýnandans Martin Gayfords um málefnið.


KL. 20:00 - allt er búið
GIN BAR Í BOÐI SPIRITS OF ICELAND
Spirits of Iceland kynna MÓA GIN
Þetta er ekki bara eitthvað gin... hér hefur verið eimað og fært í flösku ósnortin víðerni íslenskrar náttúru.


KL. 20:30 - 22:30
DJ DÓRA JÚLÍA
Komdu að dansa! Við endurtökum leikinn og bjóðum gestum Safnanætur að dansa með okkur inn í kvöldið þar sem stemningskonan DJ Dóra Júlía heldur uppi stuðinu!

Dagskrá í Safnahúsi

KL. 17:30
DRAUGASÖGUR Í LISTASAFNI ÍSLANDS

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur segir frá draugum og þeim ólíku gerðum drauga sem finnast á Íslandi, svo sem uppvakningum, afturgöngum, útburðum og fépúkum. Sagðar verða nokkrar vel valdar draugasögur. Þá kennir Dagrún okkur ýmis praktísk atriði, eins og hvernig má þekkja drauga á förnum vegi, hvernig er hægt að vekja þá upp og hvernig maður losnar undan ásóknum þeirra. Öll velkomin, sem þora!


KL. 19:30
TÓNLEIKAR MEÐ GDRN OG MAGNÚSI JÓHANNI Í LESTRARSAL SAFNAHÚSSINS

Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson eru kunnug flestum landsmönnum eftir að hafa komið víða við í sinni tónlistarsköpun undanfarin ár. Á þessum tónleikum munu þau leika lög af plötum sínum sem og tónsmíðar þeirra beggja. Tónleikarnir hefjast kl 19:30 og standa í uþb klukkustund.

GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og tvær sólóplötur til viðbótar. GDRN, árið 2020 og Frá mér til þín, árið 2024.

Magnús Jóhann Ragnarsson hefur verið mikilvirkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem píanóleikari, upptökustjóri, tónskáld og ýmislegt fleira fyrir fjölda listamanna. Hann hefur gefið út átta plötur undir eigin nafni og tvær stuttskífur. Hann var valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17