
Námskeið fyrir kennara á Akureyri
Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi fyrir kennara
Sjónarafl miðar með markvissum hætti að því að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið og auka þekkingu nemenda á menningarsögu og menningararfi þjóðarinnar. Þjálfun í myndlæsi eykur einnig hæfni í tjáningu, virkri hlustun, hugtakaskilningi og gagnrýnni hugsun og eykur hæfni í að lesa allt myndmál. Námsefnið Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi fékk bæði tilnefningu til Menntaverðlaunanna 2024 og Safnaverðlaunanna 2024.
Á námskeiðinu fá kennarar kynningu og þjálfun í að beita aðferðum myndlæsis þar sem unnið er markvisst með umræðu- og spurnaraðferð.
Myndlæsisþjálfunin fer fram með því að styðjast við valin listaverk og er fræðsluefnið sjálft unnið sérstaklega með kennara í huga.
Námskeiðið er haldið í tengslum við þriðjudagsfyrirlestra Listasafnsins á Akureyri sem að þessu sinni er á vegum Myndlistarfélagsins.
Hvar?
Listasafnið á Akureyri
Kaupvangsstræti 8
600 Akureyri
Hvenær?
Þriðjudaginn 25. mars kl. 14–16
Miðvikudaginn 26. mars kl. 09–11
Miðvikudaginn 26. mars kl. 11:30–13:30
Verð: 4.600 kr
Innifalið er bókin Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi.
Námskeiðsgjald er greitt á staðnum við komu með því að kaupa bókina í safnbúð Listasafns Akureyrar.
Skráning er á mennt@listasafn.is
Ath. að takmarkað pláss er á hvert námskeið – þar sem aðeins 5 – 7 eru á hverju námskeiði.