Ísabrot – jöklar í íslenskri myndlist
Jöklar eru órjúfanlegur hluti af kennileiti Íslands og sjálfsmynd þjóðarinnar. Frumkvöðlar íslenskrar málaralistar leituðust við að fanga sjónarspil jöklanna í verkum sínum frá fyrri hluta 20. aldar, þar sem litur, form og áhrif þeirra á umhverfi sitt urðu að viðfangsefni listmálaranna. Áhugavert er að sjá fjölbreytta nálgun listamanna þegar kemur að jöklum, sem enn eru botnlaus uppspretta innblásturs. Frá skrásetningu landslags og rómantískrar upphafningar til myndverka sem takast á við jökulinn sem huglægt og merkingarþrungið fyrirbæri.
Í nútímanum eru jöklar einnig birtingarmynd loftlagsbreytinga þar sem knýjandi þörf er á vitundarvakningu fyrir bráðnun jökla og þeirra afleiðinga sem slíkar hamfarir hafa í för með sér.
Í verkefninu Ísabrot eru listaverk valin til umfjöllunar þar sem listamenn vinna með jökla með ólíkum efnum og aðferðum. Verkin eru rædd með aðferðum Sjónarafls – þjálfun í myndlæsi. Listaverkin hvetja til samræðna og auka við þekkingu á myndlist, sem og málefnum náttúrunnar. Hægt er að nálgast listaverkin úr óteljandi áttum, spyrja spurninga og gefa gaum að því sem við sjáum. Þannig verður til þekking sem að situr eftir í hugum okkar, en með myndlist má læra um bæði sögu, samfélagið og umhverfið þannig að skilningur okkar á heiminum dýpki.
Fjölbreyttir listamenn hafa þróað smiðjur sem að allar hverfast um jökla, mismunandi nálganir á þeim og úrvinnslu sem að síðan safnast saman í þekkingarbanka, er miðlað verður hér á heimasíðunni og í útgáfu haustið 2024. Í smiðjunum er annars unnið með: Himingeiminn og rannsóknir á bráðnun jökla með gögnum frá gervitunglum, jurtir sem að koma undan jöklum, form og áferð jökla, jökla sem vettvang görninga, minningar um jökla sem eru ekki lengur til, hljóðheima jökla, litaheim jökla, kortlagningu og hreyfingu þeirra.
Einnig er hægt að fá safnfræðslu í skólastofuna með rafrænum hætti.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands.
Áhugasamir kennarar eru hvattir til þess að senda póst á netfangið mennt@listasafn.is eða á netfangið ingibjorg.hannesdottir@listasafn.is
Hér má lesa greinina Samtíma áskoranir og sjálfbærnimenntun eftir Dr. Ásthildi Jónsdóttur, sýningarstjóra Viðnáms.
Hér má lesa um jökla í aðgengilegum texta eftir Nínu Aradóttur, doktorsnema í jöklajarðfræði.
Því lengur sem við horfum, því meira sjáum við!
Ef jökullinn gæti talað
Að teikna jökul
Form og áferð jökla
Skilaboð frá geimnum
Litbrigði jökla
Umbreyting jökla
Hljóðheimur jökla
Jöklar og jurtir
Jöklagjörningur