Hafið
20.8.2022 — 2.2.2023
Listamenn sem eiga verk á sýningunni
Birgir Andrésson, Birgir Snæbjörn Birgisson, Björg Þorsteinsdóttir, Edvard Munch, Finnur Arnar Arnarson, Finnur Jónsson, Gjörningaklúbburinn, Guðmundur Benediktsson, Gunnlaugur Blöndal, Gunnlaugur Schevings, Halldór Ásgeirsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hildur Hákonardóttir, Hólmfríður Árnadóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Júlíana Sveinsdóttir, Karl Kerúlf Einarsson Dunganon, Kristinn G. Harðarson, Kristín Jónsdóttir, Magnús Sigurðarson, Sindri Leifsson, Valtýr Pétursson
Undur hafsins eru leiðarstef í sýningunni sem að höfðar til fólks á öllum aldri
Halldór Ásgeirsson 1956-
Frá augnabliki til augnabliks, 1999-2000
Hafið er umlykjandi á nýrri sýningu á 2. hæð í Safnahúsinu við Hverfisgötu þar sem fjársjóður íslenskrar myndlistar er aðgengilegur.
Gestum gefst nú tækifæri á að upplifa listaverk sem öll tengjast hafinu og orðræðunni um sjálfbærni.
20.8.2022 — 2.2.2023
Sýningarstjóri
Ásthildur Jónsdóttir
Sýningarteymi
Ásthildur Jónsdóttir
Harpa Þórsdóttir
Dagný Heiðdal
Ragnheiður Vignisdóttir
Guðrún Jóna Halldórsdóttir
Sýningarhönnuður
Axel Hallkell Jóhannesson
Ljósahönnun
Hildiberg
Margmiðlun
Gagarín
Umsjón með fræðslu og viðburðum
Ragnheiður Vignisdóttir
Markaðs- og kynningarmál
Guðrún Jóna Halldórsdóttir
Ljósmyndun og tæknimál
Sigurður Gunnarsson
Uppsetning
Dagný Heiðdal
Gylfi Freeland Sigurðsson
Indriði Arna Ingólfsson
Annahita Asgari
Hreinn Friðfinnsson 1943-
Overture, 1978
Heimshöfin hafa víðtæk áhrif á líf okkar á jörðinni. Þau eru öll tengd og þau þekja meira en 70% af yfirborði jarðar. Hafið knýr hnattræn kerfi sem gera jörðina vistvæna fyrir mannkynið. Hafið er í lykilhlutverki hvað varðar vatnsbúskapinn á jörðinni því það tekur þátt í hringrás vatns.
Finnur Jónsson 1892-1993
Morgunn á miðinu, 1927
Hafið gefur og hafið tekur
Hafið hefur veitt mörgum listamönnum innblástur til listsköpunar. Verkin á sýningunni vísa í ýmsa þætti sem vert er að skoða í samhengi við hafið og hvernig samband manna við hafið hefur breyst. Auðlindir hafsins, baráttan við bárurnar, efling náttúruvitundar, sjálfbærni og síðast en ekki síst undur hafsins eru leiðarstef í sýningunni sem að höfðar til fólks á öllum aldri.
Björg Þorsteinsdóttir 1940-2019
Bárur, 2003
Efling náttúruvitundar
Náttúran byggir á viðkvæmu jafnvægi, raskist það t.d. með hlýnun jarðar getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir líf á jörðinni. Skilningur og þekking eru forsenda þess að geta tekið þátt í að vinna gegn uggvænlegum afleiðingum af ósjálfbærri hegðun mannsins sem hefur neikvæðar afleiðingar fyrir komandi kynslóðir. Forsendur breytinga eru þátttaka allra, samvinna og virðing fyrir stað og stund.