Samskeytingar
Sigurjón Ólafsson
3.9.2016 — 15.10.2017
3.9.2016 — 15.10.2017
Val verka
Birgitta Spur
Aðfararorð að sýningunni
Aðalsteinn Ingólfsson
Sigurjón Ólafsson er þekktur sem myndhöggvari af gamla skólanum. Auk þess að höggva í stein, tré og jafnvel málm, var hann ötull við að móta í leir og gifs og sjóða saman listaverk úr málmi. Einnig má segja að stóran hluta verka hans frá sjöunda og áttunda áratug liðinnar aldar megi flokka undir það sem kallað hefur verið samskeytingar, „assemblage“. Þá er viðarbútum, tilsniðnum eða eins og þeir koma fyrir, skeytt utan á tiltekinn kjarna svo úr verður heildstætt listaverk.
Á þessari sýningu í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga gefur að líta úrval verka af þessum toga, sem Birgitta Spur hefur valið. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur ritar aðfaraorð að sýningunni.