Innsýn, útsýn – Listasafn Íslands í 140 ár
Leiðsögn sérfræðings um sýninguna þar sem áhersla verður lögð á landslag sem þema innan sýningarinnar
Gæðastundir
Gæðastundir eru viðburðir sem ætlaðir eru fólki á besta aldri, 67+. Viðburðirnir eru samsettir af sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi.
Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi og meðlæti á gæðastundum í Listasafni Íslands. Bakkelsið er í boði Brauðs og Co sem styrkir verkefnið.
Aðgangseyrir á safnið gildir.