
Listamannaspjall og móttaka til heiðurs Inuk Silis Høegh
fös
4. júlí
17:00—19:00
Verið velkomin á listamannspjall við grænlenska listamanninn Inuk Silis Høegh og danska listamanninn Jacob Kirkegaard.
Móttaka til heiðurs Inuk Silis Høegh verður í framhaldi af listamannaspjallinu.
Hægt verður að sjá vídeóinnsetninguna The Green Land (2021) þennan dag.
Listasafn Íslands kynnir listamannspajall við grænlenska lista- og kvikmyndagerðarmanninn Inuk Silis Høegh og danska hljóðlistamanninn Jacob Kirkegaard, föstudaginn 4. júlí kl. 17:00, í tilefni Íslandsfrumsýningar safnsins á vídeóinnsetningunni The Green Land (2021). Umræðunum stjórnar sýningarstjóri safnsins, Pari Stave, en rætt verður um tilurð þessarar 34 mínútna löngu landslagsinnsetningar í leikstjórn Høegh, sem vann náið að hljóðmyndinni með Kirkegaard.
Í samtalinu verður kafað í listrænt samstarf listamannanna og einnig brugðið upp myndskeiðum sem sýna hið ótrúlega sjónarspil sem einkennir verkið. Þar birtist marglaga og oft óvæntur samruni myndefnis og hljóða úr náttúrunni. Einnig verður rætt um jarðfræði Grænlands og stöðu þess á alþjóðavettvangi. Landsvæðið er einstakt, bæði jökulþekjan og iður þess, þrungin málmum.
The Green Land er sjónræn hugleiðing um landslag sem er í senn ósnortið og undirorpið breytingum á tímum loftslagshamfara af mannavöldum. Verkið er sýnt í stöðugri hringrás og í því birtast landslagsgjörningar sem kallast á við frumöflin fjögur – jörð, loft, eld og vatn – og draga upp draumkenndan, framandi heim. Órætt, grænt fyrirbæri hlykkjast um landslagið „líkt og grænn ormur“ (Høegh) og ljáir myndinni súrrealískan blæ vísindaskáldskapar. Hljóðmynd Kirkegaards er órofa hluti af þeirri skynrænu mynd sem dregin er upp af frumöflunum og byggist á náttúruhljóðum úr hafi, ís, eldstöðvum og veðri.

Jacob Kirkegaard & Inuk Silis Høegh
Um listamennina
Inuk Silis Høegh fæddist árið 1972 í Qaqortoq á Suður-Grænlandi og starfar nú sem kvikmyndagerðarmaður og listamaður í Nuuk. Hann er með meistaragráðu í Arts in Film and TV Production frá University of Bristol og meistaragráðu í myndlist frá Det Kongelige Akademi. Verk hans hafa verið sýnd á Grænlandi, í Danmörku, Frakklandi, Íslandi, Finnlandi, Lettlandi og Þýskalandi, og stuttmyndir hans og heimildarmyndir hafa birst í sjónvarpi og á hátíðum víðsvegar um heim.
Jacob Kirkegaard fæddist í sunnanverðri Danmörku árið 1975 og í listsköpun sinni leitar hann leiða til að rýna í flóknar, duldar eða óaðgengilegar aðstæður og umhverfi. Verk hans mætti kalla alltumlykjandi, hljóðrænar rannsóknir á fyrirbærum á borð við geislavirkni í Tsjernobyl, vélvædda matvælaframleiðslu og vinnslu úrgangs. Í list sinni beitir hann upptökutækninni til að fanga áþreifanlegar hliðar á óáþreifanlegum viðfangsefnum.