Big Be–Hide

Alicja Kwade

1.6.2025 — 1.5.2026

Listasafnið

Big Be–Hide (Að vera – falinn) eftir Alicju Kwade er hluti af röð verka þar sem listamaðurinn notar spegla til að ögra sjónrænum skilningi áhorfandans. Skúlptúrinn er nú til sýnis í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg, við hlið Listasafns Íslands og er í láni frá i8 gallerí til 1. maí 2026. Verkið samanstendur af tveimur steinum – náttúrulegum steini og annarri útgáfu af sama steini sem hefur verið skannaður og steyptur í ál. Steinarnir tveir eru aðskildir með tvíhliða spegli. Í verkinu leikur Alicja sér að hugmyndum um það sem er hulið og það sem er sýnilegt, hvað er spegilmynd og hver upphaflega myndin er í raun. Út frá sjónarhorni áhorfandans birtast steinarnir ýmist sem spegilmyndir eða eins og þeir séu sýnilegir í gegnum glerið, sem skapar dularfulla víxlverkun þar sem raunveruleiki og sjónblekking renna saman.

 Alicja Kwade er pólsk-þýsk listakona, sem fæddist í Katowice í Póllandi árið 1979, á tímum þegar landið var enn undir kommúnistastjórn. Hún flúði síðar til Vestur-Þýskalands ásamt fjölskyldu sinni. Þegar hún var 19 ára flutti hún til Berlínar og stundaði nám í þrívíðri myndlist við Listaháskólann í Berlín á árunum 1999 til 2005. Verk hennar eru í mörgum helstu söfnum víða um heim.

Listasafnið

1.6.2025 1.5.2026

Verkið

Alicja Kwade (1979)
Big Be–Hide (Að vera – falinn), 2018
Steinn, ál, spegill og húðað stál.
Með leyfi listamannsins og i8 gallerí.

Ljósmynd

Sigurður Gunnarsson

Staðsetning

Hallargarðurinn, fyrir framan Kvennaskólann

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17