Fræðslustarfsemi við Listasafn Íslands

Safnfræðsla - Miðlun

Leiðsögn, fyrirlestrar og myndbandasýningar í tengslum við sýningar, auglýst sérstaklega. Sjá einnig Fræðsludagskrá
Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa og félagasamtök og er þá greitt fyrir leiðsögn skv. gjaldaskrá Listasafns Íslands.
Upplýsingar í síma 515 9600 / 515 9612

Fjölskyldudagskrá
Dagskrá auglýst sérstaklega í tengslum við sýningar. Aðstaða til skapandi vinnu og lestrar á Vinnustofu barna á jarðhæð

Skólahópar
Safnið bíður mismunandi dagskrá og efnisnálgun fyrir nemendur á öllum skólastigum. Tekið er mið af aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla þar sem það á við. Einnig eru í boði námskeið fyrir kennara. Tekið er á móti nemendum grunn- og framhaldsskóla og börnum á forskólaaldri, virka daga eftir samkomulagi.
Pantanir og nánari upplýsingar í síma 515 9612 milli kl. 8 - 16.


Fræðsluvefir um listaverkaeign safnsins

Listavefurinn

Listavefur krakka

Norrænt samstarfsverkefni - HALLÓ LISTAVERK
Nordic Handscape er norrænt samstarfsverkefni sem hefur að markmiði að rannsaka og þróa mögulega miðlun menningararfs með farsímatækni. Verkefnið var styrkt af Norrænu ráðherranefndinni. Sjá: www.nordichandscape.net

Alþjóðatengsl og fagleg þróun
Starfsemin tekur mið af siðareglum Alþjóðaráðs safna/ICOM og fagdeildar um fræðslu og menningarmál/CECA. 


Aðgengi fyrir alla
Táknmálstúlkun veitt samkvæmt samkomulagi og komið til móts við einstaklinga og hópa fólks með sérþarfir. Aðgengi fyrir hreifihamlaða er gott. 

Fræðslumiðstöð á jarðhæð
Aðgangur að rafrænum gagnagrunni með ljósmyndum og heimildum um öll verk í eigu safnsins eftir íslenska listamenn. Fræðsluþættir sýndir í tengslum við yfirstandandi sýningar auk þess sem sýningaskrár og listtímarit liggja frammi.

Fullorðinsfræðsla
Dagskráin skapar tækifæri fyrir gestina til að nálgast myndlistina á margvíslegan hátt; fræðilegum forsendum eða með óformlegum hætti, bæði í safninu sjálfu og utan þess. Fræðsludeildin skipuleggur dagskrá í tenglsum við allar sýningar í safninu svo sem málþing, samtal við listamenn, fyrirlestra, hádegisleiðsögn og helgarleiðsögn auk þess að veita leiðsögn fyrir hópa á eigin vegum. Á dagskrá eru jafnframt fræðslufundir og námskeið um málefni myndlistar og afmarkaða þætti listasögunnar.









Safnbygging: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík Skrifstofur: Laufásvegi 12 • Sími 515 9600 • list@listasafn.is